 |
 |
 |
There is no information in english for this page.
|
|
 |
|
|
|
Home > Information in Icelandic |
|
|
|
Information in Icelandic |
|
|
|
Velkomin í Norræna lýðheilsuháskólann, þar sem þú getur beint lífi þínu á nýjar brautir.
Er hægt að læra nokkur áhugaverðara en lýðheilsufræði? Spyrjir þú nemendur á námskeiðum hjá okkur, er svarið einatt á einn veg. En fjölmargir koma til okkar af sjö öðrum ástæðum.
Við erum nefnilega ekki eins og aðrir skólar.
- Norræn menntastofnun og fundarstaður
Til okkar koma nemendur frá Íslandi, Noregi, Finnlandi, Danmörku, Svíþjóð, Færeyjum, Grænlandi og Álandseyjum. Öll kennsla fer því fram á dönsku, sænsku, norsku eða ensku. Lýðheilsufræðingar á öllum aldri geta staðfest hve mikilvæg tengslanet nemenda á námskeiðum NHV eru.
- Allir þátttakendur á námskeiðunum okkar eru í fullu starfi, hafa háskólapróf og stefna að starfsframa
Allir nemendur okkar starfa við heilbrigðisþjónustu og hafa háskólapróf (skilyrði fyrir þátttöku). Flestir stefna að starfsframa þar sem hægt er að samræma vinnu, fjölskyldlíf og skóla.
- Við erum fremst á Norðurlöndum og alþjóðlega viðurkennd fyrir nám og rannsóknir
Fyrstu meistaraprófsnemendur við NHV luku námi á árinu 1981. Síðan hafa 270 einstaklingar lokið meistaranámi, MPH. Verkefni þeirra vitna um gæði í fræðistörfum. Mikilvæg norræn námskeið og vinnustofur eru haldin við NHV í samstarfi við bæði norræna og alþjóðlega aðila.
Þar sem lýðheilsufræði eru breitt svið, hefur NHV valið að sérhæfa sig á þremur sviðum. Heilbrigðisstjórnun, heilbrigðiseflingu og félagslegri velferð. Til þeirra heyra meðal annars geðheilsa, hreyfihömlun, heilbrigði barna og unglinga og þverfaglegt samstarf.
- Enginn annar háskóli býður upp á jafn margar leiðir í lýðheilsufræðum
Við bjóðum upp á meistara- og rannsóknamenntun auk rannsókna í lýðheilsufræðum. Við bjóðum einnig eftir- og símenntun fyrir starfsfólk heilbrigðisstofnanna á Norðurlöndum.
Við bjóðum upp á námsbraut til meistaraprófs, Master of Public Health (MPH). Þú getur í upphafi ákveðið námsleiðina sem lýkur með meistararitgerð. Þú stjórnar sjálfur/sjálf hvenær í náminu þú lýkur hinum ýmsu fögum.
Eins og þú sérð er sveigjanleiki í fyrirrúmi hjá okkur. Það þýðir í raun að nemendur geta sjálfir skipulagt menntun sína.
- Uppeldisfræði byggð á samtölum
Frá upphafi, eða á fimmta áratug, höfum við nýtt uppeldisfræði sem byggir á samtölum. Á NHV kennum við oftast í umræðuhópum þar sem menn miðla af reynslu sinni. Kennslan byggir einnig á raunverulegum dæmum og miðar að lausn vandamála.
Einstaka námskeið er hægt að taka í fjarnámi á vefnum.
- Tvær vikur í skólanum í einu – staðbundnar lotur
Yfirleitt er námið þannig byggt upp, að kennt er í tvær vikur og nemendur búa á háskólanum í Gautaborg á meðan.
Við bjóðum nýtísku kennsluaðstöðu og íbúðir, á fallegum náttúrustað í útjaðri Gautaborgar. Frá fyrirlestrarsalnum er horft yfir höfnina, fallegan garð og veitingastaði. Og viljir þú skoða meira, er hægt að taka sporvagninn inn í miðborg Gautaborgar á tíu mínútum. Þar er allt það sem stórborgin hefur upp á að bjóða, skemmtanalíf, menning og íþróttir.
- Námið er ókeypis
Námið er ókeypis. Uppihald og ferðir eru mikið niðurgreidd.
Eins og gefur að skilja væri hægt að segja miklu meira um skóla eins og NHV. Við vonum að þetta yfirlit á íslensku, veiti þér smá innsýn í það hvernig er að stunda nám í NHV. Nánari upplýsingar um skólann á sænsku og ensku eru á vefsíðu okkar.
Bestu kveðjur frá starfsfólki NHV!
Print this page
|
|
|
|
|
 |
|
|